Upplýsingar
Ferlið
Hjá okkur er þetta einfalt.
- 01
Þú bókar bás
Þú bókar bás í 7, 14, 21 eða 28 daga. Þegar bókun er lokið og greiðsla hefur borist færðu tölvupóst með aðgangsupplýsingum að „Mínu svæði“, þar sem þú getur hafið skráningu á vörunum þínum.
- 02
Skráning á vörum
Þegar þú hefur skráð þig inn á „Mitt svæði“ á gullidmitt.is skráirðu vörurnar þínar og verðleggur þær á því verði sem þér þykir sanngjarnt. Farðu í „Products“, smelltu á „Add“ og fylltu út upplýsingarnar fyrir hverja vöru.
Skráðu greinargóða lýsingu, til dæmis „Hvít samfella“ eða „Svartir Nike skór“, ásamt stærð, básanúmeri og verði.
Básanúmerið kemur sjálfkrafa inn í vöruleitina út frá skráningunni, svo þú þarft ekki að setja það í vöruheitið.
- 03
Skráning bankaupplýsinga
Til að við getum greitt þér söluhagnaðinn þarftu að skrá bankaupplýsingar. Það gerirðu í notendastillingum á „Mínu svæði“ með því að slá inn banka, höfuðbók og reikningsnúmer.
Við leggjum söluhagnaðinn inn á reikninginn þinn, að frádreginni 20% söluþóknun, innan 72 stunda frá því að leigutímabilinu lýkur.
Athugaðu að ekki er hægt að greiða út söluhagnað fyrr en bankaupplýsingar hafa verið skráðar.
- 04
Upphaf leigutímabils
Þér er velkomið að koma klukkan 17:00 daginn áður en leigutíminn hefst, eða þegar við opnum fyrir básaleigendur fyrsta dag leigutímans.
Innifalið í leigunni
- Herðatré
- Perlur til að merkja stærðir
- Þjófavarnir (ótakmarkað fyrir vörur yfir 1.800 kr.)
- Verðmiðar (límmiðar)
- Merkimiðar (pappamiðar fyrir merkibyssu)
- Létt þrif í básnum á meðan leigutíma stendur
Starfsfólk okkar fer 2–3 hringi á dag um verslunina og lagar til í básnum ef þörf er á. Ef þú hefur séróskir erum við alltaf til taks í afgreiðslunni.
- 05
Myndatökur
Við hvetjum alla seljendur til að taka myndir af sem flestum vörum, enda er góð vöruleit á gullidmitt.is. Þú getur líka deilt myndunum á sölusíðuna okkar á Facebook, „Vörur til sölu – Gullið mitt“, til að auka sýnileika varanna.
- 06
Verðbreytingar og afsláttur
Þér er frjálst að breyta verði hvenær sem er á meðan leigutímabilinu stendur. Farðu inn á „Mitt svæði“ á gullidmitt.is, veldu „Products“ og síðan vöruna sem þú vilt breyta. Nýja verðið skilar sér alltaf til kaupanda, hvort sem nýr verðmiði er settur á vöruna eða ekki.
Þar sem allar vörur eru merktar með strikamerki, lýsingu og verði þarf að prenta nýjan miða og setja á vöruna svo rétt verð komi fram á merkingunni.
Viljir þú gefa afslátt af öllum vörum í básnum þínum er best að hafa samband við okkur í afgreiðslunni eða í tölvupósti á gullidmitt@gullidmitt.is.
